Jæja þá ákvað ég eftir miklar pælingar að henda bara inn einu
bloggi svona í tilefni dagsins og jú það er merkisdagur ég er að
fara á skíði eftir smá stund með henni Ernu minni
En hún er á
leiðinni til mín hingað út í sveit, svo ég er bara að bíða eftir
henni...!
Þetta verður fyndið og það er leiðinlegt á svona stundum að eiga
ekki myndavél kanski ekki fyrir mig en fyrir ykkur enda í fyrsta
skipti sem ég voga mér á skíði, ég held að þetta sé hættuleg
íþrótt
En lítið að frétta af mér ég er bara út í sveit en Erna er komin
bæti við þegar ég ligg á sjúkrahúsinu brotin á báðum og með
bakverki
Jæja komin aftur að vísu degi eftir en málið var þannig að það
var varla hægt að renna sér á skíðum en sökudólgur þess var of
mikið af púður snjó, en ég og Erna fórum upp í brekku talsvert
langt héðan og reyndum að renna okkur en það bara gekk ekki,
reyndum að renna okkur 2 en fórum svo bara aftur heim í sveitina
kaldar og svangar útaf þessu erfiða labbi sem við lögðum á okkur
til að fara ekki á skíði!!!
Þegar við komum svo loksins heim(vorum samt mun fljótari á
þeirri leið enda engir krókar vissum hvert við ættum að fara)
ákváðum við að fá okkur eitthvað að borða og fiskibollur urðu fyrir
valinu með karrýsósu og hrísgrjónum,það var spes! eða þar að segja
eldamennskan maturinn var svo alveg ágætur
en við borðuðum hann
yfir O.C.....!
Og í einu auglýsingarhléinu fékk Erna sms um að okkur væri boðið
heim til hennar Láru því Sigrún hefði verið að baka og húnn ætlaði
að koma með smá góðgæti þangað og Mmmm...! þetta var geggjað gott,
ég að vísu gaf mér bessaleyfi og drakk nýmjólk með eins og mér væri
borgað fyrir það og mallinn minn er ekki sáttur við mig núna,
hehe!
En auglýsingar, þær heilaþvo mig! þegar ég er búin að vera að
horfa á tv í einhvern tíma skjá einn þá sérstaklega þá get ég ekki
beðið eftir að horfa á þættina sem er veriið að auglýsa enda er
hver einasti þáttur sá sem maður á ALLS EKKI AÐ MISSA AF...!!!!
ÞETTA ER ÞÁTTURINN SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ EFTIR...!!!
Og viti menn ég get ekki beðið sit skjálfandi inn í stofu með
tannstöngla í augunum bara svo ég sofni ekki því ég ætla ekki að
missa af neinu! Nei ok smá ýkjur en allavegana þá get ég samt ekki
beðið eftir þáttunum mínum t.d O.C og One Tree Hill og altaf verð
ég fyrir smá vonbrigðum því þátturinn í þessari viku er ekkert
meira spennandi en þátturinn á undan, kanski frekar í One tree hill
því mér finst O.C ekki vera eins spennó núna og hann var en það er
bara smekksatriði
Ég verð samt að segja að American Next Top Model kom sterkt inn
hjá mér eða seinasta sería, ég hef aldrei verið mikill aðdáandi en
núna ég var að farast úr spenningi en mín stelpa vann, semsagt
stelpan sem ég hélt með og úff hvað ég var ánægð þegar ég sá
úrslitin því ég þoldi ekki stelpuna sem var eftir með henni...! Ef
ég segi alveg eins og er þá leið mér bara mjög vel í hjartanu þegar
ég sá að hún hafði unnið..! Svo núna næst er verið að finna
Breska ofurmódelið og ég æla sko að horfa shjitt það verður
fyndið
En allavegna má ekki vera að þessu held að það sé eitthvað að
fara að byrja í tv hehe djok er að hugsa um að fara að baka
skúffuköku
Kata